Svæðanudd

Svæðanudd (reflexology) byggir á þeim kenningum að til séu punktar eða viðbragssvæði sem svari til allra líffæra og líffærakerfa líkamans. Megintilgangur meðferðarinnar er að koma jafnvægi á orkuflæði til og frá líffærum og kerfum, losa um spennu og koma á slökun.

Uppruni svæðanudds er ekki þekktur en talið er að farið sé að vinna með hugmyndafræðina um sama leyti og þrýstipunktameðferð eða um 4000 f.kr. Það var síðan árið 1917 að bandarískur læknir Dr. Fitzgerald lagði grunnlínur að svæðameðferð en formið eins og við þekkjum það í dag kemur frá Eunice Ingham sem nær óslitið frá 1930 til dauðadags 1974 vann að því að þróa og gera það að þeirri vísindagrein sem það er í dag.
 
Viðbragðsvæði eru hvoru tveggja í höndum og fótum en algengara er að vinna nuddið á fótum þar sem Ingham taldi þá svara betur þrýstimeðferð. Hver meðferð tekur um 60 mínútur.

Smellið hér til að skoða VERÐSKRÁ