KENNARAR
.jpg)
Gunnur Róbertsdóttir
Gunnur kennir sjúkraþjálfari yoga í vatni fyrir barnshafandi í hádeginu á mánudögum. Gunnur útskrifaðist árið 2000 frá Háskóla Íslands og hefur kennt víða. Gunnur æfði sund og hefur þjálfað í vatni síðastliðin 14 ár og stundað yoga í 20 ár. Hún hefur áhuga á jákvæðri sálfræði, sundi og útihlaupum. Gunnur á 3 börn, fædd 2001, 2004 og 2008.
.jpg)
Margrét Stefánsdóttir
Margrét er löggiltur sjúkraþjálfari og STOTT PILATES kennari. Hún hefur kennt leikfimi í sal og vatni frá árinu 1995 og hefur stundað jóga og hugleiðslu til margra ára. STOTT PILATES æfingakerfið er nútímaleg útfærsla á upprunalegu pilates æfingunum sem Joseph Pilates hannaði fyrir meira en 80 árum en hefur verið aðlagað að nútímalegri vitneskju um líkamsrækt og lífeðlisfræði. Æfingarnar eru framkvæmdar rólega og miða að því að bæta líðan, styrk og líkamsstöðu með því að leggja áherslu á djúpa vöðvakerfið. Þær veita góðan grunn fyrir annars konar þjálfun, s.s hlaup, golf, sund, skíði og henta vel með annarri hreyfingu. Auðvelt er að aðlaga og einstaklingsmiða æfingarnar þannig að þær henti byrjendum jafnt sem lengra komnum. Margrét kennir á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18.30.

Selma Birna Úlfarsdóttir
Selma er íþróttafræðingur að mennt og hefur stundað jóga síðastliðin ár. Hún hefur komið að margskonar hreyfingu s.s. Rope jóga, fimleikum og Fit-Pilates, ásamt því að hafa þjálfað fólk á öllum aldri. Jóga er hennar aðal áhugamál og hennar leið til að takast á við stress og hlúa að líkama og sál. Selma kennir morgunjóga, alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 8.30. Jógatímarnir byggja á því að auka vellíðan með því að leggja áherslu á styrk, stöðugleika, liðleika, jafnvægi og þol, ásamt öndunaræfingum. Allir tímarnir enda á góðri slökun til að byggja upp orku og losna við streitu.

Signý Einarsdóttir
Signý hefur lokið 240 stunda jógakennaranámi hjá Ástu Arnardóttur jógakennara (námið er viðurkennt af Jógakennarafélagi Íslands og miðast við 200 tíma kröfu Yoga Allience). Signý hefur stundað jóga af ýmsum toga af og til síðustu 20 árin. Ásamt því að starfa hjá Fjárvakri ehf. og kenna í Sóley Natura Spa á laugardagsmorgnum leiðir hún jóga hjá RKÍ einu sinni í viku. Signý hefur sterka tengingu við náttúruna og hennar aðaláhugamál ásamt jóganu er útivist þ.á.m. fjallgöngur. Hún hefur mikinn hug á að flétta saman þessum áhugamálum og leiða jóga úti í náttúrinni. Það er því aldrei að vita hvort hún kenni jóga undir berum himni þegar nær dregur sumri og þannig viðrar.

Sunna Dís Jónasdóttir
Sunna kennir meðgöngujóga með Sigrúnu og Gunni. Sunna á sjálf 4 ára gamlan son og þekkir því vel ávinninginn af því að stunda jóga á meðgöngu. Sunna nemur sálfræði við Háskólann í Reykjavík og er að klára þar 3. ár.
Sunna stunda jóga og hugleiðslu, en hún hefur frá unglingsaldri haft brennandi áhuga á heilsu og öllu því sem viðkemur. Jóga sameinar öll hennar áhugamál í eitt og gefur lífi hennar meiri dýpt og jafnvægi.
.jpg)
Unnur Valdís Kristjánsdóttir
Unnur leiðbeinir í fljótandi hugleiðslu er vöruhönnuður frá LHÍ og sérstök áhugamanneskja um baðmenningu og vatnsauðlegð Íslands. Það er trú hennar að við getum nýtt okkar dýrmæta vatn enn frekar með hjálpartæki eins og Flothettunni. Tíðarandinn kallar á nýjar áherslur í heilsueflingu þar sem að áherslan sé meiri á slökun og djúpa upplifun. Unnur Valdís leiðbeinir i fljótandi hugleiðslu kl. 20.15 á þriðjudagskvöldum, sem er eitthvað sem allir verða að prófa.
