Íþróttanudd
Íþróttanudd er kraftmeira meðferðarform en hið hefðbundna klassíska nudd. Með íþróttanuddi er oftar unnið á staðbundnum svæðum og meðferð miðar að því að fá aukið blóðflæði í viðkomandi vöðva með hita svo hægt sé að meðhöndla hann með dýpra nuddi eða teygjum.
Íþróttanudd er oft notað fyrir keppni og þá yfirleitt með það í huga að ná fyrr hita í viðkomandi vöðva eða vöðvahóp áður en hefðbundin upphitun hefst. Þetta getur haft úrslitaáhrif þegar í keppni er komið ef keppandi hefur verið tæpur fyrir.
Það hefur verið vísindalega rannsakað að djúphitun á vöðva með nuddi t.d. kálfavöðva fyrir keppni virkar 40% lengur heldur en hefðbundin upphitun.
Íþróttanudd utan keppni er öflugt meðferðarform til að halda keppnisfólki gangandi á erfiðum æfingaálagstímabilum.
Á hinn almenna borgara getur þessi tegund nudds verið mjög öflugt meðferðarform t.d. ef mýkja þarf upp stífar axlir, kálfa, mjóbak eða á önnur vandamál sem tengjast kyrrsetuvinnu og almennri líkamsrækt.
-Eykur blóðflæði í vöðva sem aftur minnkar triggerpunktamyndun
-Mýkir stífa vöðva
-Hjálpar til við endurhæfingu eftir meiðsli
-Eykur teygjanleika vöðva (vöðvahópa)
-Heldur hita í vöðva mun lengur en hefðbundin upphitun
-Mýkir stífa vöðva
-Hjálpar til við endurhæfingu eftir meiðsli
-Eykur teygjanleika vöðva (vöðvahópa)
-Heldur hita í vöðva mun lengur en hefðbundin upphitun
50 mín. eða 80 mín.
Smellið hér til að skoða VERÐSKRÁ
