Íslenskar jurtir
Allar vörur frá Sóley húðsnyrtivörum eru byggðar á kraftmikilli blöndu af villtu íslensku birki,
vallhumli og víði.
vallhumli og víði.
Birki / Betula pubescens: Íslenska birkið er þekkt lækningajurt og einstakt í sinni röð. Birki inniheldur flavonóiða sem geta haft allt í senn bólgueyðandi, bakteríudrepandi og veirudrepandi áhrif. Birkið er blóðhreinsandi og mikið notað við húðsjúkdómum svo sem exemi og sóríasis. Birki er líka sagt örva húðina og auka teygjanleika hennar.
Vallhumall / Achillea millefolium: Vallhumall hefur stundum verið kallaður hermannajurtin. Hún er ákaflega fjölhæf og vinsæl lækningajurt og indíánar kölluðu hana „læknar allt.“ Vallhumall hefur lengi verið notaður gegn brunasárum og blæðingum. Vallhumall virkar vel gegn ofnæmisútbrotum og er talin ein besta jurtin til að græða þrálát sár. Þá þykir vallhumall hafa sérlega góð áhrif á bláæðakerfið.
Víðir / Salix phylicifolia: Víðirinn er mjög heilandi og kröftug jurt sem inniheldur salicylic sýrur sem eru nýttar í öll helstu verkjalyf í dag. Hann reynist mjög vel gegn höfuðverk, hita, gigt og fleiri óþægindum sem lýsa sér með verkjum og bólgum. Dregur úr þrota og græðir.
Villt. Hjá Sóley húðsnyrtivörum föngum við magnaðan kraft vandlega valinna, íslenskra jurta og sköpum einstakar jurtablöndur sem við blöndum við bestu fáanlegu hráefni. Að okkar mati býr stórkostlegur lækningamáttur í náttúrunni.
Hreinleiki. Hugmyndafræði okkar er sú sama og forfeðra Sóleyjar sem könnuðu lækningamátt jurtanna: Það sem látið er á húðina er fæða fyrir húðina. Við viljum að vörur okkar séu svo heilsusamlegar að það megi borða þær! Á Íslandi eigum við því láni að fagna að hafa nóg af hreinu lofti og vatni, sem eru afbragðsaðstæður fyrir ræktun lífrænna jurta.
Kraftmiklar. Talið er að efni í íslenskum jurtum séu kraftmikil því íslensk sumur standa stutt yfir og þurfa jurtirnar að öðlast allan sinn kraft á örskömmum tíma til þess að lifa af veturinn.