8-01-2012
Flothettan sem notuð er í fljótandi hugleiðslu í Sóley Natura Spa tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands!
Unnur Valdís Kristjánsdóttir hönnuður Flothettunnar er sérstök áhugamanneskja um baðmenningu og vatnsauðlegð Íslands og nú er frábær hönnun hennar á Flothettunni tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands sem afhent verða á Bessastöðum í febrúar.

Unnur Valdís er jafnframt leiðbeinandi í fljótandi hugleiðslu í spainu okkar og vöruhönnuður frá LHÍ. Það er trú hennar að við getum nýtt okkar dýrmæta vatn enn frekar með hjálpartæki eins og Flothettunni. Tíðarandinn kallar á nýjar áherslur í heilsueflingu þar sem að áherslan sé meiri á slökun og djúpa upplifun. Unnur Valdís leiðbeinir I SAMFLOTI - fljótandi hugleiðslu kl. 20.15 á þriðjudagskvöldum, sem er eitthvað sem allir verða að prófa.
 

Fljótandi hugleiðsla er stunduð í okkar hlýju og notalegu saltvatnssundlaug sem við kjósum að kalla SAMFLOT.
Hvernig væri að gefa sjálfum sér frí frá erli hversdagsins og hverfa inn í heilandi og heillandi heim vatnsins?  Vatnið býr yfir eiginleikum til að skapa bestu mögulegar aðstæður til slökunar og endurnæringar. Líkaminn losnar undan krafti þyngdarlögmálsins. Þægilega umlukinn vatni hægist á huganum og þú flýtur inn í djúpa slökun. Fljótandi hugleiðsla gefur þér frið frá öllu áreiti, þar sem að hugur og líkami sameinast í áhugaverðri upplifun.