Sóley vörur
Sóley húðsnyrtivörur eru unnar úr handtíndum íslenskum jurtum – sérvaldar vegna virkni þeirra og hreinleika. Hugsaðu vel um húð þína jafnt sem umhverfið. –Sóley
Konan að baki Sóley húðsnyrtivörum er Sóley Elíasdóttir, en hún starfaði áður sem farsæl leikkona til fjölda ára. Sóley á ekki langt að sækja áhugann og þekkinguna á íslenskum lækningajurtum, því að baki henni standa margir ættliðir grasalækna. Það kom því engum á óvart að Sóley skyldi taka upp þráðinn frá langalangömmu sinni, Grasa-Þórunni (Þórunni Gísladóttur) og hefja framleiðslu GRÆÐIS eftir aldagamalli uppskrift sem varðveist hafði í fjölskyldu Sóleyjar. Uppistaðan í GRÆÐI eru villtar og kraftmiklar handtíndar íslenskar jurtir, sem einnig mynda grunninn í allri Sóley húðsnyrtivörulínunni. GRÆÐIR smyrslið lagði grunninn að Sóley Organics fyrirtækinu sem hefur nú verið starfrækt frá árinu 2007.
Sóley Natura Spa notast eingöngu Sóley húðsnyrtivörur, sem eru á Reykjavík Natura hótelherbergjunum og eru einnig til sölu í Sóley Natura Spa.

