Sagan

Upphafið má rekja til þess að Icelandair hótelin leituðu til Sóleyjar Elíasdóttur, eiganda Sóley Organics, árið 2011 en áhugi var á að bjóða upp á íslenskar sápur og sjampó á hverju herbergi hótelsins sem væru bæði umhverfisvænar og unnar úr íslenskum jurtum.

Með tilkomu þessarar nýju stefnu Icelandair Hotels Reykjavík Natura var ákveðið að efna til enn frekara samstarfs ásamt fleirum og úr varð Sóley Natura Spa sem opnaði í júní 2011.