Tímar & námskeið

Ein af hugsjónum okkar í Sóley Natura Spa er að bjóða upp á andlega og líkamlega þjálfun í bland við þá næringu, slökun, kyrrð og ró sem hægt er að njóta innan veggja heilsulindarinnar. Úrval jóganámskeiða eru skýrasta dæmið um það, en orðið jóga - sem er fimm þúsund ára gamalt kerfi lífsreglna - merkir sameining. Í jóga eru m.a. gefnar leiðbeiningar um líkamsæfingar og hugleiðslu í því skyni að sameina anda og líkama, og auðvitað kyrra hugann líka. 

Alls er boðið upp á 11 jóga- og pilatestíma í hverri viku og þar að auki 11 mömmu- og meðgöngutíma, alla daga nema sunnudaga með sjö frábærum og reyndum jógakennurum.

Sjá nánar um áherslur okkar í jóga HÉR